Hér kemur svo þriðja bloggfærslan á einum degi frá mér :)
Á mínu heimili búa tveir aðilar og er bara ein fartölva þar núna eftir að borðtölvan bilaði. Tölvan er mikið notuð á hverjum einasta degi og þá helst til að fara á internetið. Þar sem við notum netið svona mikið erum við með sítengingu hjá Símanum svo við erum í raun alltaf tengd við netið. Internetið notum við á margskonar hátt, t.d. í tengslum við skólann, msn, til að skoða fréttavefi, fara í leiki, senda tölvupóst, nota heimabankann, skoða bloggsíður hjá vinum og til að ná í bíómyndir, þætti og tónlist.Við erum ekki mikið að kaupa eitthvað á netinu annað en flugmiða.
Við erum bæði með gsm síma sem eru fastir við okkur alla daga nótt sem dag :) en notum þá mun minna núna en við gerðum fyrst þegar við fengum þá fyrir rúmum 7 árum. Þegar ég var í menntaskóla var ég í upplýsingatækni og þá sendi ég minn fyrsta tölvupóst, skráði mig á msn og setti upp fyrsta vef minn, en það eru líka um 7 ár síðan. Þannig í raun gerðist ég mjög tæknivædd fyrir 7 árum. En þá var ég löngu orðin tölvuvædd þar sem það var komin tölva á mitt heimili örugglega um 1984 og var ég þá bara 3 ára svo ég hef alist upp við tölvur. Ég eignaðist sjálf mína eigin tölvu árið 1994 að mig minnir, aðeins 13 ára gömul og á þeim tíma var sjaldgæft að heimili áttu tölvur.
Þar sem ég átti sjálf heima í útlöndum síðustu 2 ár þá notaði ég mikið tölvupóstasamskipti en þó notaði ég mun meira msn eða skype og enn í dag á ég vini í útlöndum sem ég hef samband við á sama hátt. Ég held að tölvupóstur, gsm og msn hafi breytt miklu um samskipti. Með gsm er hægt að ná í fólk hvar sem er hvenær sem er. Msn og skype er mjög þægilegt þar sem þú getur líka haft samband við fólk hvar sem er og þá án kostnaðar t.d. við vini í útlöndum. Með msn getur þú líka verið að gera eitthvað annað í leiðinni og þú talar við fólk, t.d. skoðað eitthvað á netinu og þá er oft sem maður er að benda hinum á að kíkja á eitthvað á netinu. Einnig nota ég mikið stafrænu myndavélina mína og set þá myndirnar sem ég tek inn á tölvuna og svo oft líka út á netið svo aðrir geti séð þær.
Læt fylgja eina mynd af gamla herberginu mínu og þá var borðtölvan enn á líf og var ég þá oft í báðum tölvunum í einu :)
Ef þið viljið sjá myndina stærri þá klikka á:
Keywords: tæknisaga