Log on:
Powered by Elgg

Gerður Björk Harðardóttir :: Blog :: Myspace.com

November 26, 2006

Þar sem ég er í upplýsingatækni þá þarf ég víst að skrifa eins og eina eða tvær bloggfærslur. Þessi færsla fjallar um netsamfélag eins og ég þekki það. Til er alveg hellingur af netsíðum þar sem fólk er að segja hugsanir sínar, setja inn myndir, hafa samband við aðra, deila tónlistarsmekk o.s.frv. Núna þessa stundina er ég að eyða hellings tíma í að vafra um myspace.com þar sem fólk segir frá hugsunum sínum og þar kemur fram áhugamál þeirra og þá aðallega tónlistaráhugamál. það sem mér finnst skemmtilegast er að skoða hvaða tónlist fólk er að hlusta á og fara inn á síður hjá hljómsveitunum til að vita hvað er það nýjasta og fá að hlusta á lögin þeirra. Ég er nú sjálf með svona myspace síðu en nota hana ekki neitt ennþá nema bara til að geta skoðað hjá öðrum.

 

Keywords: netsamfélag

Posted by Gerður Björk Harðardóttir

You must be logged in to post a comment.