Log on:
Powered by Elgg

Margrét Inga Guðbjartsd :: Blog

November 25, 2006

Ég þekki netsamfélög eins og barnaland.is og  blog.central.is. Á barnalandi skoða ég heimasíður hjá ættingjum og vinum en ég hef ekki gert heimasíðu fyrir stelpurnar mínar. Mér finnst mjög gaman að skoða heimasíðurnar og einnig skoða ég stundum umræðurnar en ég hef aldrei tekið þátt í þeim og eru sumar ansi skondnar. Mér finnst líka mjög gott við barnaland að það er hægt að auglýsa allskonar til sölu og hef ég heyrt að ef maður er að leyta af eitthverju þá á maður að kíkja á barnaland, það sé svo margt til sölu þar.

blogcentral þekki ég ekki eins vel þrátt fyrir að ég er með 2 bloggsíður þar ásamt vinkonum mínum og bekknum mínu í skólanum. Ég hef ekki skrifað á hvoruga þessa síðu en ég hef samt kommentað ;);)  Ég bæti kannski úr því síðar og fer að skrifa nokkra pistla!!!!

Posted by Margrét Inga Guðbjartsd | 0 comment(s)

Ég er ekki mjög tæknivædd manneskja. Ég fékk minn fyrsta síma þegar ég var tvítug og fékk ég hann í afmælisgjöf, það var nokia sími. Ég á núna ódýrasta nokia símann sem hægt er að fá og er bara ánægð með hann. Það er nóg fyrir mig að eiga síma sem að hægt er að hringja úr og í og senda sms ;);)

Ég og tölvur erum orðnar ágætis vinkonur en ég eignaðist mína fyrstu leikja tölvu þegar ég var 12-13 ára og var hún mikið notuð. En fyrsta talvan kom ekki inn á mitt heimili fyrr en ég var tvítug og var ég þá með ókeypis nettenginu frá bankanum mínum og komst maður bara inn stundum og stundum á netið. Ég man ekki alveg hvenær ég sendi minn fyrsta tölvupóst en ætli það hafi ekki verið þegar fyrsta talvan kom inn á mitt heimili. Áður en ég fékk tölvu heima þá notaði ég mikið tölvur í fjölbrautaskólanum mínum og heima hjá systur minni.  Ég fékk fartölvu í fyrra og var það þvílíkur munur að eiga svoleiðis og er ég með adsl tengingu. Þetta eina talvan sem er á heimilinu og er því oft rifist um hana. Ég nota tölvuna mjög mikið til að skoða blogg og að gera verkefni fyrir skólann og er stundum á msn en ég fékk mér svoleiðis fyrir nokrum vikum en er ekki mjög dugleg að nota það.

Ég er með blogg síðu með vinkonu mínum og líka með bekknum, en ég hef aldrei skrifað inn á hana en bara kommentað. Ég er að gera mína fyrstu heimasíðu í upplýsingatækni og gengur það ágætlega. 

Posted by Margrét Inga Guðbjartsd | 0 comment(s)

November 13, 2006

jæja hér kemur prufa númer 2, þar sem að ég setti ekki inn neina mynd eða tengil við heimasíðu!!!!

 Ég fór í bíó í gær á mýrina og var hún geggjað góð, reyndar vissi ég eiginlega alltaf hvað var að gerast í myndinni, þar sem að ég var búin að lesa bókina. Ég læt fylgja með mynd af bókinni;);)

Posted by Margrét Inga Guðbjartsd | 0 comment(s)

November 06, 2006

 

Þetta er víst ekki mín fyrsta færsla hér því að ég henti hinni út sem að ég var búinn að skrifa. He he ég kann ekkert að blogga hef aldrei gert þetta áður. Ég er greinilega algjör nörd á svona blogg en ég held að þetta komið með tímanum:)

Jæja nenni ekki að skrifa meira, nóg í bili:):)

Posted by Margrét Inga Guðbjartsd | 1 comment(s)