Ég er ekki mjög tæknivædd manneskja. Ég fékk minn fyrsta síma þegar ég var tvítug og fékk ég hann í afmælisgjöf, það var nokia sími. Ég á núna ódýrasta nokia símann sem hægt er að fá og er bara ánægð með hann. Það er nóg fyrir mig að eiga síma sem að hægt er að hringja úr og í og senda sms ;);)
Ég og tölvur erum orðnar ágætis vinkonur en ég eignaðist mína fyrstu leikja tölvu þegar ég var 12-13 ára og var hún mikið notuð. En fyrsta talvan kom ekki inn á mitt heimili fyrr en ég var tvítug og var ég þá með ókeypis nettenginu frá bankanum mínum og komst maður bara inn stundum og stundum á netið. Ég man ekki alveg hvenær ég sendi minn fyrsta tölvupóst en ætli það hafi ekki verið þegar fyrsta talvan kom inn á mitt heimili. Áður en ég fékk tölvu heima þá notaði ég mikið tölvur í fjölbrautaskólanum mínum og heima hjá systur minni. Ég fékk fartölvu í fyrra og var það þvílíkur munur að eiga svoleiðis og er ég með adsl tengingu. Þetta eina talvan sem er á heimilinu og er því oft rifist um hana. Ég nota tölvuna mjög mikið til að skoða blogg og að gera verkefni fyrir skólann og er stundum á msn en ég fékk mér svoleiðis fyrir nokrum vikum en er ekki mjög dugleg að nota það.
Ég er með blogg síðu með vinkonu mínum og líka með bekknum, en ég hef aldrei skrifað inn á hana en bara kommentað. Ég er að gera mína fyrstu heimasíðu í upplýsingatækni og gengur það ágætlega.