Ég þekki netsamfélög eins og barnaland.is og blog.central.is. Á barnalandi skoða ég heimasíður hjá ættingjum og vinum en ég hef ekki gert heimasíðu fyrir stelpurnar mínar. Mér finnst mjög gaman að skoða heimasíðurnar og einnig skoða ég stundum umræðurnar en ég hef aldrei tekið þátt í þeim og eru sumar ansi skondnar. Mér finnst líka mjög gott við barnaland að það er hægt að auglýsa allskonar til sölu og hef ég heyrt að ef maður er að leyta af eitthverju þá á maður að kíkja á barnaland, það sé svo margt til sölu þar.
blogcentral þekki ég ekki eins vel þrátt fyrir að ég er með 2 bloggsíður þar ásamt vinkonum mínum og bekknum mínu í skólanum. Ég hef ekki skrifað á hvoruga þessa síðu en ég hef samt kommentað ;);) Ég bæti kannski úr því síðar og fer að skrifa nokkra pistla!!!!