Ókey... þá er best að byrja. Er að vinna að verkefni númer eitt og ætli ég skelli því ekki bara hingað inn þegar því er lokið.
En núna er ég farin að vinna.
Keywords: æfingakennsla, ferilmappa
Keywords: æfingakennsla, ferilmappa
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 0 comment(s)
Hananú. Fyrsti apríl á morgun svo það er víst ekki seinna vænna að fara að ljúka þessu bloggakkorði. Ekki það að ég mun sosum halda áfram að tjá mig hér að minnsta kosti þar til ég útskrifast. Vonandi.
Það sem ég hef lært hingað til á þessu námskeiði kenndu við kennarann í starfi er ýmislegt. Í elgg hef ég bloggað eins mikið og mér hefur verið unnt auk þess sem ég hef njósnað óspart um hvað samnemendur mínir eru að aðhafast. Reyndar geri ég það laumulega því ég hef ekki verið nægilega dugleg að ,,kommentera" á skrif þeirra. Svona er maður egósentrískur. Allavega þegar ég les aftur í tímann hér í þessum skrifum mínum sé ég ákveðið ferli, ég get rifjað upp hvar ég var stödd á hverjum tíma og sé að ég hef lokið ýmsu sem áður óx mér í augum. Ég er komin með ansi ágæta wikibók, sem að sjálfsögðu má stækka, breyta og bæta endalaust, en ég þykist hafa stofnað ágætis grunn. Nú mér tókst að troða einhverjum ,,fælum" inn í safnið mitt, hugarkortum, skilaverkefnum, hljóðskrá, krossaprófinu og svo hef ég sett myndir inn á síðuna mína. Talglærurnar koma síðar. (Námsframvinda mín á hugarkorti mun birtast þar helst ekki seinna en á morgun og hér með bið ég um séns á því :|
Mér finnst ég hafa lært af einum hlutanum að passa röddina mína og ég finn að ég er meðvitaðri um líkamsstöðu og raddbeytingu mína í vinnunni en ég var. Nú svo er ég orðin voða klár hérna á elgg og webct og mér líður hreint alveg eins og heima hjá mér í wiki-heimum. Eftir að hafa tæklað upplýsingalæsisverkefnið komst ég að því að það var ekki eins erfitt og ég hélt og ég held svei mér þá að ég hafi þar öðlast ákveðna innsýn í eitthvað sem var mér lokuð bók áður, og innsýnir eru alltaf góðar. það má eiginlega segja að þetta námskeið hafi verið mikill innsýnaveitir (sem er nýtt orð sem ég hyggst fá skráð í orðabókina).
Semsagt, verði mars blessaður og komi apríl sæll.
Keywords: skilagrein
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 2 comment(s)
úff, mars er að klárast. Ég var að enda við að ljúka leitarvélaverkefninu og er sem þungu fargi hafi verið af mér létt.
Hins vegar er ég hér að hugleiða um eportfolio og kennslugrein mína...
Í spænsku hef ég látið nemendur vinna verkefnamöppu með ýmiskonar verkefnum og alls ekki væri svo vitlaust að láta þau vinna hana í svona eportfolio þar sem öllu væri haldið saman og þau sæju árangurinn smám saman. Mér hefur þótt þetta talsverð vinna, en alls ekki leiðinleg. Ég er viss um að ég hafi lært meira en ég er búin að fatta að ég hafi lært. Nú kann ég til dæmis að búa til krossapróf og leita á netinu. En ætli það séu ekki frekar hugleiðingar um hvað ég hef lært..... Sem verður lokabloggið í þessum verkefnapakka.
Eportfolio er sniðugt og gæti verið gagnlegt við hinar ýmsu námsgreinar. Ég get alveg séð fyrir mér að nota það að einhverju leyti í framtíðinni.
Keywords: eportfolio
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 0 comment(s)
Júhú! Búin að gera krossaprófið og það virðist virka. Þetta var eitthvað að stama hjá mér, en nú er það komið og ég skora á þá sem villast hingað inn að taka prófið :)
Keywords: krossapróf
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 0 comment(s)
Búin að breyta og stækka wikibókina. Stolt móðir í fæðingarhríðum.
Mitt helsta vandamál í dag er frestunarárátta þegar kemur að leitarvélaverkefninu. Ég ætti kannski ekkert að vera að segja frá því, en suma hluti á ég hreinlega erfitt með að sökkva mér í. Þetta er einn af þeim.
Keywords: mánudagur
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 2 comment(s)
ég fer í ljós tvisvar í viku. og mæti reglulega í líkamsrækt. ég fer í hollywood um helgar, með mynd af bílnum í vasanum.
Best að gleyma sér ekki. Blogg skal það vera.
Í gær var fullorðinsfræðsluritgerðin endanlega skipulögð svo að allt er að fara í gang á þeim bænum. Wikibókin er í vinnslu í höfðinu á mér og ég er að reyna að bögglast í gegnum upplýsingalæsið. Hef þó heyrt á fleirum en mér sjálfri að okkur þykir verkefnið hreint út sagt hvorki spennandi né skemmtilegt. Meira svona eitthvað sem þarf að afplána.
Keywords: blogg
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 0 comment(s)
þetta er allt að gerast hérnamegin... Nú er ég komin á frussandi skrið með wikibókina, búin að setja inn myndir og töflu og er ógeðslega merkileg með mig í þessum bransa. Um gæði bókarinnar ætla ég lítið að tjá mig, en mér finnst ég bara svo flott að geta búið til svona gáfulegt eitthvað á sjálfu internetinu. Gott ef ég fæ ekki bara á tilfinninguna að einhver gæti tekið mark á mér!
Nú og svo er ég búin að vera að stama mig til upplýsingalæsis. Ég er einhvernvegin bara vön að gúgla allt draslið. Aldrei hefði ég ímyndað mér að það væri hægt að gúgla með allskonar tæknilegum aðferðum! Og svo er ég búin að vera að skoða leitarvélarnar mínar. Mér finnst þessi upplýsingalæsisnámsþáttur pínu ruglingslegur og ég finn að ég er örlítið smeyk við hann. Mín sterkasta hlið hefur aldrei verið tölvneska og ég er ekkert rosalega góð í að fatta tæknilega fítusa og geta útskýrt þá og skilgreint svo vel sé. En ég er að rembast og reyna.
Svo var ég að enda við að skila hugarkorti. Jahú hvað mín er á miklu spani hér í kveld! Gott ef ég finn ekki bara koffínið streyma um æðar mér, ég sem drekk ekki kaffi...
Það er leikur að læra, leikur sá er mér kær, að vita meira og meira, meir'í dag en í gær.
Keywords: leitarvélar
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 3 comment(s)
Nú er ég á fullu að djöflast í wikibókinni minni. Ég er með eina spurningu sem ég vona að fáist svar við, en þar sem ég er ekki alveg viss hvernig er best að ná í Salvöru ætla ég bara að skella henni hér fram með von um að eitthvað gerist :)
Sko, það sem ég er að velta fyrir mér er hvernig í ósköpunum ég geti breytt nafninu / fyrirsögninni á wikibókinni minni, þar sem mér finnst ég vera á leið í aðrar áherslur en þær sem fyrirsögnin segir til um. hmmm...?
anyone....Bueller?
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 3 comment(s)
Nú sýnist mér vera kominn tími til að gerast upplýsingalæs. Annars er ég bara að hripa hér niður örfá orð til að uppfylla kröfuna um að blogga amk tvisvar í viku. Vonandi teljast helgar með...
Ég ætla að lesa upplýsingar á morgun. Já og umræðast og beita fjölgreindunum mínum og reyna að fá hugmyndir í wikibókina. En fyrst þarf ég að fara á Bernhöftsættarmót á hótel Nordica. Ætli það megi ekki búast við almennilegu bakkelsi?
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 3 comment(s)
ókey. Nú þarf ég semsagt að læra á leitarvélar til að taka þátt í næsta námskeiðshluta. Mikill endemis endaleysis listi er þetta yfir námshluta í þessu blessaða námskeiði. Ætlar þetta engan endi að taka?
Nema hvað... ég hugsa og hugsa um hvað ég á að setja í wikibókina mína. Ég mun komast að niðurstöðu að lokum. Vonandi. Ég er allaveganna farin af stað og það gildir. Svo þarf ég víst að fara að setja mig inní helling af tæknilegum atriðum til að geta gert allt hitt sem ég þarf líka að gera. Ég kann samt að leita í Wikipedia. Ég hef meira að segja fengið skilaverkefni frá nemendum mínum í spænsku sem þau hafa stolið beint af spænsku útgáfunni. Sumir hafa reyndar lagt á sig aðeins meiri vinnu og fundið greinar á ensku Wikipediu og rúllað þeim í gegnum þýðingarvélar. Textinn sem kemur útúr þýðingarvélunum er algjört rugl, bull og húmbúkk. Sem dæmi má nefna nemann sem skrifaði í þýðingarvélina "I'm looking forward" og textinn sem kom út á spænsku þýddi ,,ég lít út eins og framvörður". Svo hló ég. Ég mæli semsagt ekki mikið með þýðingarvélum, nema viðkomandi hafi því meiri kunnáttu í báðum tungumálum og geti lagfært það sem er ruglað. Babelfish er þýðingarvél á netinu sem hefur spýtt útúr sér margskonar vitleysu sem ég hef skemmt mér konunglega við að lesa en ekki eins mikið við að meta.
Af öðrum gagnasöfnum en Wikipedia hef ég þó enga reynslu. Ég hef aðallega notast við hana til að finna einmitt þetta áðurnefnda stolna efni og þá hef ég leitað á ensku og spænsku. Íslensku útgáfuna verð ég að viðurkenna að ég þekkti ekki fyrr en ég fór að gramsa í tengslum við wikibókina mína. Þá tékkaði ég hvort eitthvað væri til fyrir um efnið og hvað það þá væri. Þetta er ansi aðgengileg veröld þarna inni.... sem minnir mig á skemmtilega bloggfærslu sem ég las um daginn og tengist einmitt wikipedia.
Jæja. Nú fór ég allt í einu að hugsa... á það til á stundum.... og sú tilfinning sem sló niður í höfði mér er að ég hafi ekki nokkra einustu hugmynd um það hvernig í ósköpunum ég stend í þessu námi. Þetta er þessi lausa lofts tilfinning sem kemur af og til yfir mig í fjarnáminu. Svona eins og ég sé ekki alveg með á nótunum, ekki að taka nógu mikinn þátt, ekki nógu dugleg. Samt held ég að ég hafi hingað til gert allt það sem af mér hefur verið krafist. Vonandi.
En af hverju finnst mér ég þá vera svona vitlaus?..
Keywords: gagnaleit
Posted by María Hjálmtýsdóttir | 2 comment(s)