“Concept Mapping” eða Cmaps voru fyrst kynnt snemma á áttunda áratugnum af Josph D. Novak sem starfar við Cornell University. Novak byggði hugmyndir sínar á kenningum David Ausubel um upptöku þekkingar (assimilation theory), en samkvæmt henni byggist hæfileikinn til að nota nýja þekkingu og muna til langtíma á því að ný þekking hafi merkingu og mögulegt sé að setja hana í samhengi við fyrri þekkingu. Önnur undirliggjandi meginkenning er constructivism, en samkvæmt henni er þekking ekki bara send og móttekin heldur sköpuð með virkum hætti af nemandanum sem byggir þessa skoðun á fyrri þekkingu og reynslu. Hugtaka kort (Concept Map) er “skipulags forrit” sem tengir ný fyrirbæri (hugmyndri, þekkingu) við þekkingu sem fyrir er á myndrænann hátt. CmapTools™ er hugtakakorta forrit sem gefur möguleika til samvinnu námi á netinu. Hugbúnaðurinn er frír, þróaður og gefinn út af the Institute for Human and Machine Cognition (IHMC). Cmap Tools einfaldar framframsetningu á þekkingu og sýnir samspil sköpunar og þekkingar. Það sem CmapTools býður meðal annars upp á eru vinnufundi á netinu þar sem þátttakendur geta fylgst með framlagi annara þátttakenda og stjórnandi fundarins getur tekið upp myndskeið af öllu ferlinu og endurspilað að vild og þannit rannsakað stöðu hvers þátttakanda. (About Concept Maps: http://cmapskm.ihmc.us/servlet/SBReadResourceServlet?rid=1064009710027_1483270340_27090&partName=htmltext Ég mæli með notkun CmapTools í hópavinnu og til að velta upp hugmyndum (brainstorming)
Keywords: CmapTool, Hugtakakort