Log on:
Powered by Elgg

María Ölversdóttir :: Blog

April 27, 2008

“Concept Mapping” eða Cmaps voru fyrst kynnt snemma á áttunda áratugnum af Josph D. Novak sem starfar við Cornell University. Novak byggði hugmyndir sínar á kenningum David Ausubel um upptöku þekkingar (assimilation theory), en samkvæmt henni byggist hæfileikinn til að nota nýja þekkingu og muna til langtíma á því að ný þekking hafi merkingu og mögulegt sé að setja hana í samhengi við fyrri þekkingu. Önnur undirliggjandi meginkenning er constructivism, en samkvæmt henni er þekking ekki bara send og móttekin heldur sköpuð með virkum hætti af nemandanum sem byggir þessa skoðun á fyrri þekkingu og reynslu. Hugtaka kort (Concept Map) er “skipulags forrit” sem  tengir ný fyrirbæri (hugmyndri, þekkingu) við þekkingu sem fyrir er  á myndrænann hátt. CmapTools™ er  hugtakakorta forrit sem gefur möguleika til samvinnu námi á netinu. Hugbúnaðurinn er frír,  þróaður og gefinn út af the Institute for Human and Machine Cognition (IHMC). Cmap Tools einfaldar framframsetningu á þekkingu og sýnir samspil sköpunar og þekkingar.   Það sem CmapTools býður meðal annars upp á eru vinnufundi á netinu þar sem þátttakendur geta fylgst með framlagi annara þátttakenda og stjórnandi fundarins getur tekið upp myndskeið af öllu ferlinu og endurspilað að vild og þannit rannsakað stöðu hvers þátttakanda. (About Concept Maps: http://cmapskm.ihmc.us/servlet/SBReadResourceServlet?rid=1064009710027_1483270340_27090&partName=htmltext Ég mæli með notkun CmapTools í hópavinnu og til að velta upp hugmyndum (brainstorming)

 

 

Keywords: CmapTool, Hugtakakort

Posted by María Ölversdóttir | 0 comment(s)

February 10, 2008

http://fc02.deviantart.com/fs13/f/2007/077/2/e/Animator_vs__Animation_by_alanbecker.swf

 

Fáránlega skemmtilegt video, ég er nokkuð viss að mörg ykkar gætu gert þetta á einhverjum mín. en mér finnst þetta frábært, kunni ekki að gera þetta að videoi en er að vona að mér takist að gera þetta virkt!

 

Hvaða vittleysu hef ég nú gerti??

Keywords: tilraun

Posted by María Ölversdóttir | 2 comment(s)

Það væri nú ekki rétt að segja að ég sé góður bloggari eða viti yfir höfuð hvað ég er að gera á þessari síðu en þetta er hluti af námi  mínu og væntanlega hefði ég ekki prófað þetta nema þessvegna og nú finnst mér þetta bara stórskemmtilegt og er sjálfsagt bara "dottin í það". Mér hefur nú samt ekki þrátt fyrir margar tilraunir tekist að koma inn videói eða tenglum í textann hjá mér, vantar nú leiðbeiningarbæklinginn sem maður les aldrei! en með því að reyna ekki gerist örugglega ekki neitt.

Þetta hjálpar nú ekki mikið, svo er það stóra spurningin hvort þetta virkar og ef ekki hvernig fæ ég þetta til að virka?? Verst hér er ekki nokkur bloggari sem ég get leitað til? Fólk á varla farsíma hér í þessari sveit!

já svo er það eitt enn sem er að vefjast fyrir mér, hvað á ég að velja í "Access Restrictions"??

Keywords: blogg, video.

Posted by María Ölversdóttir | 0 comment(s)