Log on:
Powered by Elgg

María Ölversdóttir :: Blog :: Að gerast bloggari?

February 10, 2008

Það væri nú ekki rétt að segja að ég sé góður bloggari eða viti yfir höfuð hvað ég er að gera á þessari síðu en þetta er hluti af námi  mínu og væntanlega hefði ég ekki prófað þetta nema þessvegna og nú finnst mér þetta bara stórskemmtilegt og er sjálfsagt bara "dottin í það". Mér hefur nú samt ekki þrátt fyrir margar tilraunir tekist að koma inn videói eða tenglum í textann hjá mér, vantar nú leiðbeiningarbæklinginn sem maður les aldrei! en með því að reyna ekki gerist örugglega ekki neitt.

Þetta hjálpar nú ekki mikið, svo er það stóra spurningin hvort þetta virkar og ef ekki hvernig fæ ég þetta til að virka?? Verst hér er ekki nokkur bloggari sem ég get leitað til? Fólk á varla farsíma hér í þessari sveit!

já svo er það eitt enn sem er að vefjast fyrir mér, hvað á ég að velja í "Access Restrictions"??

Keywords: blogg, video.

Posted by María Ölversdóttir

You must be logged in to post a comment.