Log on:
Powered by Elgg

Salvor Gissurardottir

Who am I?
Ég er lektor við Kennaraháskóla Íslands í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu.

Uppruni og menntun


Ég ólst upp í Laugarnesinu, fór í Kvennaskólann í Reykjavík og þaðan í MR. Í MR var ég í eðlisfræðideild. Ég ætlaði í verkfræði en eignaðist dóttur í menntaskóla og var einstæð móðir og fór í viðskiptafræði því þar var minni tímasókn og atvinnuhorfur góðar að námi loknu. Þar lagði ég stund á þjóðhagfræði og alls kyns hagstjórnarkenningar. Það sem heillaði mig mest í hagfræðináminu var saga tæknibreytinga og hvernig nýjar aðferðir við að vinna verk og framleiða vörur breiddust út, hvernig ný þekking flæddi um samfélagið og hvaða áhrif það hafði á samfélagsskipan og lífskjör.

Framhaldsskólakennari


Að loknu háskólanámi í viðskiptafræði gerðist ég tölvukennari í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Seinna kenndi ég nokkur ár við Fjölbrautaskólann í Breiðholti og var deildarstjóri tölvufræðslu þar. Ég kenndi líka á þessum árum ýmis tölvunámskeið við Tækniskóla Íslands.

Námsefnishöfundur


Ég hef samið og gefið út nokkur kennslukver með leiðbeiningum með ýmsum tölvuforritum en síðustu árin þá hef ég nánast eingöngu gefið út efni á vefnum á ýmis konar formi.

Námstjóri


Árin 1986-1988 var ég námstjóri í tölvufræðslu í menntamálaráðuneytinu. Verksvið mitt var þar grunnskólinn og framhaldsskólinn.

Framhaldsnám í USA


Ég fékk smán saman meiri áhuga á hvernig hin nýja upplýsingatækni breytti námi og kennslu og ég fór í framhaldsnám til Iowa í Bandaríkjunum og lauk árið 1990 meistaranámi í kennslutækni, námsgagnagerð og notkun tæknimiðla í námi og kennslu frá University of Iowa. Yngri dóttir mín fæddist í Iowa.

Háskólakennari


Þegar ég kom frá námi þá fór ég til starfa sem lektor í upplýsingatækni og notkun tölvu í námi og kennslu við Kennaraháskóla Íslands.
Undanfarin ár hef ég kennt námskeið á kjörsviði í upplýsingatækni og námskeið í framhaldsnáminu í KHÍ. Námskeiðin eru Upplýsingatækni og skólastarf og Nám og kennsla á Netinu. Ég hef líka komið inn með námsþætti í ýmsum öðrum námskeiðum.

Sérfræðingur hjá forsætisráðuneytinu


Á árunum 1999 til 2003 þá var ég í leyfi að hluta frá starfi mínu í KHÍ vegna þess að þá starfaði ég að þróunarverkefni sem sérfræðingur í málefnum upplýsingasamfélagsins hjá forsætisráðuneytinu.

Viðurkenningar og verðlaun


Árið 2002 fékk ég verðlaun frá Evrópska skólanetinu fyrir skipulagningu á námskeiðinu NKN 2002 en það námskeið var þannig skipulagt að nemendur héldu ferilmöppur sem voru að hluta til blogg en að hluta til vefsíður. Ég hef haft mikinn áhuga á rafrænum ferilmöppum og prófað ýmis verkfæri með nemendum sem gera þeim kleift að halda sjálfir utan um nám sitt.

Síbloggandi


Ég hef verið bloggari alveg frá árinu 2000 og held úti bloggsíðunni salvor.blog.is á moggablogginu.

Nýjasta áhugamálin er wiki


Núna er ég hins vegar mest upptekin af wikikerfum, ég skrifa heilmikið af greinum á íslensku wikipediu og íslenskar wikibækur og svo kenni ég líka nemendum að nota wikikerfi.

Femínisti


Ég hef starfað mikið að jafnréttismálum, ég var í framkvæmdanefnd Kvennalistans í Reykjavík og starfaði þar mikið og ég var ein af ráðskonum Femínistafélags Íslands í nokkur ár og sá um póstlista og vefsíðu félagsins.