ég nota tölvuna mjög mikið heima hjá mér...bæði til að blogga og ná í verkefni og skila verkefnum...auk þess sem ég nota hana til að tala við vini mína... Við erum með fartölvu heima hjá okkur, man ekki alveg hvað hun heitir, og er hún að virka mjög fínt..ég reyni að forðast að taka tölvuna með mér í skólann þar sem ég tel mig læra minna ef ég er með hana á fyrirlestrum. Við notum adls þráðlaust net heima hjá okkur því það gerir okkur kleift að fara með tölvuna út um allt hús en vera samt í netsambandi. Ég nota aðallega tölvuna og internetið heima hjá okkur og nota ég það helst til að skila verkefnum og ná í verkefni, skoða tilkynningar og fleira sem tengist skólanum, ræða við bekkjarfélaga og fá aðstoð, sem og ég blogga sjálf og skoða annarra blogg. Einnig nota ég internetið til að fara í bankann minn og reyna að hafa samband við ættingja sem ekki búa á landinu. Þar sem við búum bara 2 á heimilinu erum við bara með eina tölvu en við eigum samt sitthvora tölvuna en ein er bara í notkun. Það kemur fyrir að ég nota tölvuna til að versla mér dót á ebay, samt ekki oft.. og ég downloda ekki neinu í tölvuna okkar. Já ég er með gsm síma og maðurinn minn líka.. ég man bara alls ekki hvenar ég sendi fyrst tölvupóst en ég man að ég var 13 ára þegar ég fékk fyrsta gsm símann minn. fyrsta bloggið sem ég setti upp var árið 2000 þegar ég byrjaði i framhaldskóla.
ég nota internetið og tölvupóst voðalega mikið til að hafa samband við frænda minn sem býr í kaupmannahöfn sem og ég notaði það sjálf voðalega mikið til að hafa samband við fjölskyldu mína þegar ég var í kaupmannahöfn í skóla. Já tölvupóstur og annað hefur svo sannarlega breyst frá því ég byrjaði að nota þetta. núna er hægt að blogga í gegnum gsm síma, það eiga nánast allir gsm síma. tölvunotkun og internet hefur gjörbreytt mínum samskiptum við alla, þar sem ég get nánst hvenar sem er haft samband við mína vini og ættingja í gegnum netið hvort sem það er sms, msn eða e mail.. ég vill helst hafa þráðlausartölvu heima vegna þess að þá get ég farið með tölvuna út um allt húsið án Þess að missa nettengingu, eins eigum við stafræna myndavél sem við notum voðalega mikið og er nauðsynleg að mínu mati, við þurfum aldrei að bíða eftir að fá myndir úr framköllun heldur setjum þær bara beint í tölvuna.
þegar ég var úti í danmörku notaði ég mjög mikið skype til að hringja heim, þó aðallega í kærastann minn. nuna nota ég þetta aldrei vegna þess að ég get bara hringt í fjölskyldu og vini eða sent sms :)
Keywords: tæknisaga