Í nóvember síðastliðnum gerðist sá stórmerkilegi atburður að vinur minn kynnti mig fyrir myspace netsamfélaginu. En þar eignast maður fullt af vinum, frá öllum heimsálfum. Maður býr til síðu sem fyrir vikið verður mjög persónuleg, síðan getur maður sent fólki sem er með síðu á myspace fyrirspurn um það hvort þeir vilji gerast vinir manns. Þá er hægt að skoða myndir, skilaboð og fleira sem viðkomandi hefur sett á síðuna sína.
Þetta samfélag þykir afar hentugt fyrir tónlistarfólk til að geta komið tónlist sinni á framfæri. Það er gert með því að yfirleitt eru þrjú lög frá viðkomandi listamanni sem hægt er að hlýða á. Í framhaldi af því er oftast hægt að niðurhala lögum eftir listamanninn. Þar koma einnig upplýsingar í ljós hvenar nýjasta platan kemur út og hvar næstu tónleikar verða haldnir. Það má því segja að þetta sé einskonar fréttabréf, þar sem að þú getur komið skilaboðum á framfæri. Ég sjálfur hef kynnst nokkrum lítt þekktum tónlistarmönnum eftir að þeir hafa skoðað síðuna mína og yfirleitt höfum við tengst í gegnum sameiginleg áhugamál, eins og tónlist.
Ég mæli með þessu samfélagi, það gengur vandræðalaust fyrir sig og hart er tekið á klámi og ofbeldi. Þannig að ef að ég ákveð að gefa út tónlist í framtíðinni er þetta fínn stökkpallur.
Hægt er að skoða mína síðu á myspace á slóðinni www.myspace.com/ragnarro
Keywords: myspace netsamfélag
