Log on:
Powered by Elgg

Tinna Rúnarsdóttir :: Friends blog

November 06, 2006

Ég byrjaði að nota internetið þegar ég flutti til Bandaríkjana árið 1998, en þó aðallega til að senda tölvupóst til vina og ættingja hérna heima. Það voru samt afar fáir sem voru með tölvupóst þá þannig að sniglapósturinn var meira notaður en tölvupósturinn. Ég notaði tölvur og internetið lítið við skólastarf eða til hversdaglegra hluta.

Þetta ár sem ég var í Bandaríkjunum varð mikil þróun í tölvuvæðingu og GSM væðingu Íslendinga. Þegar ég fór út áttu fáir tölvu og ef fólk átti GSM síma þótti öðru fólki sú manneskja hallærisleg. Þegar ég kom heim áttu allir GSM síma og flestir áttu tölvu, internetið var orðinn partur af daglegu lífi. Ég var fljót að ná því sem ég missti af og var mjög fljótt farin að vinna skólaverkefni í tölvu og eignaðist fljótlega GSM síma.

Í dag finnst mér erfitt að hugsa mér lífið án tölvu og GSM símans. Internetið er alveg ómissandi bæði í skólastarfi og einkalífinu. Ég nota netið mikið í skólastarfi, í verkefnavinnu, til að afla kennslugagna og fleira. Ég held sambandið við suma sem ég kynntist í Bandaríkjunum í gegnum tölvupóst og msn. Msn gagnast líka í skólastarfi, til að tala við samnemednur, fá aðstoð, senda verkefni á milli á fljótlegan og þægilegan hátt og margt fleira.

Ég er mikill aðdáandi starfæna myndavéla, mér finnst æðislegt að geta tekið endalaust af myndum og svo valið úr þær bestu og framkallað þær. Það er líka gaman að geta unnið með myndirnar áður en þær eru sendar í framköllun. Ég nota netið til að senda myndirnar erlendis í ódýra framköllun og hefur það reynst mér vel.

Keywords: Tæknisaga

Posted by Lena Sólborg | 0 comment(s)

Barnland.is er mjög vinsæll vefur á íslandi, konur eru þó í miklum meirihluta sem stunda þann vef, en þar eru ekki eingöngu mæður, heldur konur sem finnst gaman að spjalla um málefni dagsins og konur sem eru að reyna eignast börn. Umræðurnar á vefnum eru margvíslegar, meðganga, fæðing, börn, barnauppeldi, málefni líðandi stundar svona mætti lengi telja. Það er einnig vinsælt að biðja um ráð, þá helst um barnauppeldi.

Það eru margar konur sem sækja vefinn á hverjum degi og taka þátt í umræðunum, flestar taka þær þátt undir öðru nafni, svokölluðu nikki. Fæstir vita hverjar þær eru í raun og veru og því leyfa þær sér að segja margt sem þær myndu e.t.v. ekki segja annars. Því verða margar umræður, sérstaklega þær sem snerta viðkvæm málefni, mjög hitamiklar og fara oft úr böndunum. Aðgát í nærveru sálar er orðið að mottói hjá mörgum konunum.

Það er gott að geta leitað til reynslu meiri einstaklinga og fá stuðning eða ráð. En þegar er leitað eftir því á barnalandi verður maður að vera viðbúin því að það styðja ekki allir við bakið á þér og sumir segja ýmislegt andstyggilegt við mann. Ráðin eru sömuleiðis ekki alltaf góð, margar konur fara algjörlega út í öfgar og koma af stað hræðsluáróðri.

Barnaland.is er mjög stórt netsamfélag sem hægt er að hafa gagn af ef maður passar sig á öfgunum og er ekki auðsæranlegur.

Keywords: netsamfélag

Posted by Lena Sólborg | 0 comment(s)

 

Þetta er víst ekki mín fyrsta færsla hér því að ég henti hinni út sem að ég var búinn að skrifa. He he ég kann ekkert að blogga hef aldrei gert þetta áður. Ég er greinilega algjör nörd á svona blogg en ég held að þetta komið með tímanum:)

Jæja nenni ekki að skrifa meira, nóg í bili:):)

Posted by Margrét Inga Guðbjartsd | 1 comment(s)

November 03, 2006

götubörn 

 götubörn humm hefð kannski getað fundið skemmtilegri mynd:/

Keywords: prufa

Posted by Vilborg Jóna Hilmarsdóttir | 0 comment(s)

Baltasar Dagur Prufu blogg

Keywords: Prufa

Posted by Lena Sólborg | 0 comment(s)

October 30, 2006

Tæknin er óaðskiljanlegur hluti af nútímanum og lífi mínu. Ég á fartölvu sem ég fer með hvert sem ég fer en ég nota hana ekkert á mjög tæknilegan hátt :) Ég nota hana þó í lærdóm en annars nota ég hana aðallega í að vafra á netinu.

Ég er algjör msn fíkill og er alltaf á msn. Ég byrjaði að nota msn þegar ég var 16 ára minnir mig. Mér finnst þetta mjög þægileg leið til þess að spjalla við fólk og kynnast fólki aðeins betur, en ég er ekki sú manneskja sem bæti fólki á msn listann minn sem ég þekki ekki baun! Það er til dæmis mjög gott að kynnast fólki, eins og bekkjarfélögum sínum, í gegnum ms. Ég nota það líka meira en tölvupóst. Ég tala meira við vinkonu mína, sem flutti til Noregs fyrir stuttu, í gegnum msn heldur en með tölvupósti og í þau fáu skipti sem ég hringi þá nota ég msn til að hringja en ekki skype.
Ég kann ekkert að dánlóda tónlist, er þó með limewire en finnst hundleiðinlegt að nota það. Ég nota líka svolítið youtube.com þjóninn en þar er að finna ýmis myndbönd. Það er þó ekki alltaf þægilegt að nota það því nettengingin er stundum svolítið hæg. Ég er ekki með hraðann á hreinu en við höfum stundum kvartað við OgVodafone en fáum þá svörin að við séum með of hraða tengingu ! Ég er ekki alveg að skilja þetta en þannig er það líka með flest tölvutengt.
Ég er með ýmis forrit á tölvunni minni sem ég kann ekkert á en með hjálp Upplýsingatækni áfangans vonast ég til að vera aðeins nærri ;) Ég læt annars karlinn minn um flesta vinnslu á heimasíðum, í photoshop og öðru slíku en hann hefur mikinn áhuga á því.

Það mætti alveg segja að við séum tæknivædd fjölskylda. Við erum með þrjár tölvur, digital myndavélar, sjónvarp í hverju herbergi og ég veit ekki hvað og hvað. En við erum ekki kannski góð í að nýta okkur tæknina. Til dæmis erum við ekki mikið að taka myndir svona dags daglega og þarf oftast að vera eitthvað í gangi til að við nennum að taka myndir :D Til dæmis eru nú nýliðinn tvö afmæli og á hvorugu þeirra var dreginn fram myndavélin. Þetta er svolítið skrýtið þar sem það hefur aldrei verið auðveldara að taka myndir, og taka nóg af þeim. Skella þeim svo bara í tölvunna, velja og hafna og málið búið. Með aukinni tækni ættu myndirnar að aukast en það hefur ekki gerst í minni fjölskyldu.
Ég hlakka þó til að nota myndavélina í starfinu mínu en mér finnst mjög mikilvægt að taka mikið af myndum af leikskólastarfinu. Það gefur foreldrum aukina innsýn í atburðina á leikskólanum og hversdagslíf og getur einnig verið tæki fyrir kennarana til að skrásetja og fleira.

Fjölskyldan sem slík pantar ekki mikið af netinu og er það þá einna helst tónlist og afþreying sem við pöntum. Verðmunur á til dæmis geisladiskum og DVD er svo gífurlegur að maður verður bara að nýta sér þetta!

Ég reyni að halda úti bloggi sjálf og skoða að meðaltali 15 - 20 blogg á hverju degi. Ég byrjaði að blogga í byrjun árs 2005, um svipað leyti og ég fékk fartölvuna mína en við það jókst tölvunotkun mín gríðarlega mikið. Blogg þreytist oft, maður veit ekkert hvað maður á að skrifa, það sem annað fólk skrifar er óáhugavert og oftar en ekki er maður að skoða blogg hjá fólki sem maður hittir á hverjum degi og því kemur bloggið ekkert á óvart. En ennþá eru til skemmtileg blogg. Þetta eru blogg sem eru vel skrifuð, með skemmtilegum sögum eða pælum og ekki er verra ef það kallar fram smá bros á vörunum :)
En ég nota ekki tölvuna bara til þess að skoða blogg. Til dæmis er netið og talvan órjúfanlegur hluti af skólalífinu þar sem flest samskipti fara í gegnum uglu og emailið. Ég nota einnig netið til að fara á heimabankann, afla mér heilmilda og spila leiki. Ég er þó ekki nörd að spila wow eða slíka leiki :D Ég er aðallega í bubbles og tetris :D

Að mínu mati hefur tæknin breytt samskiptum mínum við fólk, og samskiptum við alla held ég bara. Til dæmis síðan ég fékk fyrsta GSM símann minn í fermingargjöf hefur símhringinum farið fækkandi. Mér finnst hálf óþægilegt að hringja í fólk nema það sé einhver sem ég þekki mjög vel eða ég þurfi að segja rosalega mikið. Annars notast ég við sms og finnst það þægilegra á allan hátt. Þannig er maður einhvern veginn minna að trufla, ef fólk er upptekið þá bara les það síðar og svarar. Stundum langar manni líka að segja fólki eitthvað stutt sem maður þarf ekkert endilega að fá svar við og þá er skemmtilegra að senda sms en að hringja. Oft þegar ég þarf að hafa samband við einhvern tjékka ég fyrst á msn áður en ég hringi, svona til að athuga hvort ég þurfi virkilega að hringja ;)
Ætli þetta leiði ekki til afbrigðilegra samskipta í framtíðinni?

Að mínu mati er talvan mín internetið. Ég veit varla hvað ég ætti að gera í tölvunni ef það væri ekki net. Það er líka viðloðandi sú hugsun að ef það er ekki á netinu þá er það ekki til! Til dæmis þegar ég er að afla mér heimilda fyrir skólann dettur mér alltaf fyrst í hug að leita á netinu. Ef ég finn ekkert þar þá er ég bara búin að ákveða að það sé ekkert til! Jafnvel þó ég eigi eftir að kíkja á bókasöfnin og fleira ;)

Jæja ég held þetta sé nú bara orðið of langt hjá mér.

Kveð í bili,

IngaRut

stelpa

Framtíðin?

Keywords: Tæknisaga

Posted by IngaRut Ingadottir | 1 comment(s)

Ég hef ekki mikla reynslu af netsamfélögum sem slíkum. Það er þá einna helst blog.central þar sem ég held úti bloggi.

Það sem mig langar þó að skrifa um hér er myspace.com samfélagið. Ég hef ekki síðu á myspace, þekki lítið til þess samfélags og hef ekkert sérstaklega gaman að því að skoða slíkar síður. Það sem heillar mig þó er myspace music samfélagið. Þar er hægt að nálgast tónlist frá hinum ýmsu tónlistarmönnum og er þetta tilvalið þegar manni langar að kynnast nýrri tónlist.

Næstum allar hljómsveitir í dag eru með myspace Music síðu þar sem þau hafa örfá lög í boði og jafnvel einhvern fróðleik um sjálfan sig. Þetta er góð kynning fyrir hljómsveitina og hafa ýmsar hljómsveitir orðið vinsælar í gegnum myspace, án hjálpar plötufyrirtækja og útgefanda. Dæmi um þetta er Lilly Allen og íslenska söngkonan Lay Low en sú fyrirnefnda var orðin vel þekkt áður en hún var komin á samning.

Helsti kostur Myspace Music er sá að ekki þarf að dánlóda lögunum, ekki þarf að eyða tíma í að finna lög með forritum eins og Limewire og komast svo að því að lögin eru ekkert góð ;) Þetta er því góður kostur bæði fyrir tónlistarunnendur og hljómsveitirnar.

Hér að neðan er linkur inn á Myspace Music sem ég hvet ykkur til að kíkja á ;)

http://www.myspace.com/index.cfm?fuseaction=music&MyToken=f06a5ce3-3767-4240-be20-972f61adf145

fall of troy

Keywords: netsamfélag

Posted by IngaRut Ingadottir | 0 comment(s)

October 28, 2006

Tölvum er illa við mig, var að enda við að klára verkefnið tæknisaga og nú er ég að byrja aftur þar sem að þetta hvarf. Ég ýtti á post og ekkert gerðist. (held samt að þetta hafi verið mér að kenna, en ekki tölvunni)...... Ég á einu tölvunna sem er á heimilinu mínu, en það er Acer fartövla og er nánast alltaf kveikt á henni. Á heimilinu mínu er ADSL tenging frá ogvodafone og stundum virkar hún bara þegar henni hentar. Ég nota tölvuna mikið til að vafra um á netinu og glósa mikið í henni fyrir skólann. Það sem ég á mest erfitt með að skilja er hvers vegna ég er alltaf með tölvuna með mér, sýna henni heiminn, leyfa henni að vera með mér í bílnum og skólanum þegar að hún er svona vond við mig. Sem dæmi um það þá var ég um daginn búin að glósa í 7 klst í þroskasálfræði og var geðveikt stolt af mér. En nei, á undarlegar hátt þá vistaði tölvan tómt skjal ofan á glósurnar mínar.  Í dag spila tölvupóstar stórt hlutverk. Ég nota minn til að senda fjölskyldu, vinum, kennurum og mörgum öðrum póst. Ég man ekkert hvenær ég sendi minn fyrsta póst, ætli það hafi samt ekki verið þegar ég byrjaði í framhaldsskóla árið 2000.  Ég á gsm síma og hef átt slíkt síðan ég var 14 ára gömul. Mér finnst hann alveg ómissandi í lífi mínu. Samskipti mín við fjöskylduna og vini hafa ekkert breyst að mér vitandi. Ef að þau hafa breyst þá er það bara að ég tali meira við þau. Ég nota ekki skype, þar sem ég hef aldrei komist inn í þann pakka.  Í dag eru flest allir með stafrænar myndavélar. Ég er með eina, ekki dýra né flotta en hún skilar mjög vel sínu. Reglulega tæmi ég svo minniskortið og set myndirnar á geisladisk.  See ya...

Tölvudrasl

Keywords: Tæknisaga

Posted by Bergdís Heiða Eiríksdóttir | 0 comment(s)

Í dag eru flestir með blog, ekki bara eitt eða tvö heldur fleiri. Margir vina minna eru með blogg hér og þar, eitt fyrir hundaáhugamálið og svo annað fyrir fótboltann og svo framvegis. Ég sjálf er með eitt blogg sem að ég nota og síðan var ég að búa til þetta og heimasíðu í upplýsingatækni.  

Ég nota blog.central.is af því að það er þægiegt og auðvelt í notkun. Ég get skrifað þar að vild, breytt færslum og eytt athugasemdum sem ég kæri mig ekki um. Auk þess get ég haft marga aukahluti, klukku, niðurtalningu, upptalningu, linka á myndir eða aðrar vefsíður og svo margt,  margt fleira.

Afhverju bloggar fólk? Júms ég blogga til að láta vini og vandamenn vita hvað er að gerast í lífinu mínu. Ég hef sko engan tíma til að hringja í alla og segja frá því þegar að ég hef einhverjar góðar eða ómerkilegar fréttir sem mér langar að segja frá. Ég pæli stundum í því afhverju við setjum upplýsingar um líf okkar á veraldarvefinn. Við erum ekki annað en að gefa kannski innbrotsþjófum upplýsingar um það hvenær það er best fyrir þá að koma til að ræna okkur. Nei nei, mest megnið að fólki í heiminum er heiðarlegt svo þetta er okay.

Pælingar, pælingar, afhverju?

 Kveð í bili...

 

Keywords: Netsamfélag

Posted by Bergdís Heiða Eiríksdóttir | 1 comment(s)

Í dag er laugardagurinn 28 okt. Ég er búin að eyða mestum tíma mínum í dag uppi í skóla að gera verkefni í upplýsingatækni. Það er ágætt því núna er ég komin betur á skrið. En verð að halda áfram. Hugarkortaverkefnið er að kalla á mig.... "Bergdís, Bergdís, komdu og kláraðu mig" hehe ég er orðin svoldið sjúk í hausnum í dag :) Bless  

Posted by Bergdís Heiða Eiríksdóttir | 0 comment(s)

<< Back Next >>