Við erum með tvær tölvur á heimilinu núna þ.e. borðtölvu og fartölvuna mína sem ég nota í skólanum. Erum með ADSL tengingu. Við notum tölvurnar aðallega til þess að fá fréttir og athuga með veðrið o.fl. og ég nota ferðatölvuna við nám mitt. Krakkarnir nota þær aðallega í leiki á netinu og PC tölvuleiki og eru líka nokkuð oft á MSN að rabba við aðra krakka.
Við höfum ekki notað netið mikið til þess að kaupa. Við erum í sambandi við ættingja í Bandaríkjunum þ.e. í E-mail sambandi. Það er enginn spurning að þessi samskiptaverkfæri auðvelda okkur að koma á framfæri upplýsingum til annara og flest allir eru "bein tengdir" með GSM síma.
Við foreldranir erum bæði með GSM síma ásamt því að vera með heimilissíma. Tvíburanir okkar, Unnar og Jenný 12 ára eru bæði með síma, en það er erfitt að fá þau til að vera með þá. Andri Þór 10 ára er ekki með síma. Hann fær lánaðan síma ef þörf krefur. Tanja Marín næstum 3ja er náttúrulega ekki heldur með alvöru síma..........en hefur í þess stað eftirlíkingar sem hún talar oft í og er mjög ánægð með að vera eins og við hin.
Erum ekki með Skype, þar sem að við erum ekki í það miklu símasambandi við vini, kunningja, ættingja erlendis.
Við hlöðum þó nokkuð að myndum í tölvurnar og látum það renna í "slide show".
Með kveðju, Bella