Jæja þá er það tæknisagan, mín saga er nú ekki mjög löng fékk mér fyrstu tölvuna mína fyrir um 4 árum og endurnýjaði svo í haust. Ég byrjaði þó ekki að nota tölvuna að neinu viti fyrr en um 2 1/2 ári síðan og hefur tölvunotkun mín aukist mikið síðan þá. Fyrir um 2 árum síðan fékk ég mér svo msn og nota það orðið nokkuð mikið í dag. Við erum með sitthvora fartölvuna og notum þær báðar mjög mikið vegna náms og vinnu og þar að leiðandi með þráðlaust net og adsl. Við höfum nú ekki verið að versla mikið á netinu þó að það hafi komið fyrir en það hafa þá aðalega verið flugmiðar og utnalandsferðir. Einnig notum við heimabankann mikið til að bæði millifæra, greiða reikninga og fylgjast með stöðu mála. Ég er að sjálfsögðu með gsm eins og allir aðrir og hef átt nokkra síma en fyrsta síman fékk ég mér fyrir um 8 árum síðan. Þó á kallinn minn flottasta símann en hann er með myndavél, tölvu,gprs,gps og ég veit ekki hverju og hverju. Ég hef nú ekki verið að tengja mikið tæki við tölvuna mína en þó að sjálfsögðu myndavél og prenntara. Í dag er ég farin að nota tölvupóstinn mun meira en ég gerði og nota hann orðið daglega, þó er ég ekki í neinum föstum samskiptum gegnum mail við vini eða ættingja þá er frekar notað msn. Já eins sés hér að ofan er maður farinn að nota tæknina nú nokkuð mikið og myndi ég segja að ég væri alveg í meðal lagi þegar kemur að því að nota tæknina. Get reddað mér í tölvunni og svona en ekkert mikið meira en það þó svo að maður sé nú alltaf að læra eitthvað nýtt og er það bara flott mál:)