Ég hef nú ekki verið mikið að taka þátt í þessum netsamfélögum þó að maður þekki nú nokkur. Þá eru það helst blogg síður og barnaland sem að maður skoðar daglega. Ég hef nú ekki verið sjálf með blogg síðu og er í fyrsta skipti að taka þátt í svoleiðis með bekknum mínum en slóðin er blog.central.is/leiknemar. Einnig hef ég nýlega opnað síðu á barnalandi fyrir dóttur mína. Ég hef nú rekist á nokkra spjall vefi eins og á barnalnd.is,femin.is og dýraland.is svo einhver séu nefnd en aldrei nennt neitt að taka þátt í einhverju spjalli. Mér finnst þessi samfélög þó stórsniðug og oft hefur maður séð áhugaverðar umræður myndast en einnig geta umræðurnar farið út í algjört skítkast og leiðindi. Einnig þekki ég líka hjón sem kynntust í gegnum netið svo bara snild;)